Lagastofnun Háskóla Íslands

6.jpg

Innri raforkumarkaður ESB og Íslands- Opinn fundur 23. mars 2011



Innri raforkumarkaður ESB og Ísland. Opinn fundur Lagastofnunnar Háskóla Íslands

Miðvikudaginn 23. mars, kl 12:15 í Lögbergi, stofu 101.

Margrét Guðlaugsdóttir sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands.

Nýlega var samþykkt tilskipun nr. 2009/72/EB um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku, sem kom til framkvæmda innan ESB nú í byrjun mars. Fjallað verður um meginefni tilskipunarinnar ásamt samkeppnisreglum ESB, en saman miða þessar reglur að því að koma á samkeppni á raforkumarkaði. Einnig verður farið yfir íslenska löggjöf á þessu sviði, sérstaklega með tilliti til fyrirhugaðrar innleiðingar nýju raforkutilskipaninnar í íslenskan rétt.

Samorka, samtök orku og veitufyrirtækja á Íslandi, hafa styrkt rannsóknarstöðu við Lagastofnun til að rannsaka raforkulöggjöf ESB og Íslands.

Fundarstjóri: María Thjell, forstöðumaður Lagastofnunnar.

Allir velkomnir

Innri raforkumarkaður ESB og Íslands